Komin međ leiđ af blog.central!!!Hildur Ársćlsdóttir

Jæja ég er komin með ógeð af blog.central eins og allir aðrir og ætla að prufa þettaHlæjandi

Hún verður ábyggilega soldið tómleg á meðan prófin eru en svo ætla ég að vera dugleg að blogga í sumar er það ekki málið Glottandi

En já ég og Sæli kíktum heim um helgina og var það bara mjög gaman. Við pössuðum fyrir Kristínu systir á föstudagin, tókum bara spólur og höfðum það voða nice. Svo á laugardaginn átti Særún systir afmæli. Hún varð 11 ára skvísan.
Það var voða fínt allavega gott að éta hehehe...
Svo um kvöldið fórum við á skrallið og kíktum í þetta splash partý og var það bara mjög gaman við flökkuðum þarna á milli traffic og h-punktin þangað til við vorum orðin svöng þá fengum við okkur að éta og vorum komin heim um 4 leytið heil á húfi hehehe. Sunnudagurin var líka heldur betur nice. Við vöknuðum um hádegi fórum í bæin og í kringluna rosa gaman við keyptumi helling af hreinsidrasli og snyrtidóti.. (var að fá útborgað) elska þá daga, svo núna get ég orðið rosalega fín fyrir sumarið Koss 

Við hittum mömmu og pabba í bænum og buðu þau okkur á American style það var ljúft hehe og til að toppa það bauð kallin minn mér í bíó Brosandi svo þetta var alveg yndislegur dagur!!!!

En já myndin sem við fórum á var The hills have eyes og já ég get svo sem mælt með henni, segi kanski ekki að hún sé eitthvað góð en hún er allavegana vel ógeðsleg. Fyrir þá sem eru hrifnir af svoleiðis hryllingi ættu að hafa gaman af henni.

En nóg um þetta í bili, það nálgast óðfluga í prófin og því þarf ég að hætta í tölvuna og reyna að fara læra eitthvað ... Svo Hildur kveður að sinni....Svalur

Auglýsing